Blogga?

Á maður að byrja að blogga aftur eða? Veit varla hvort maður hreinlega nenni því.... hmmm?

Maður er búinn að missa sig svo gjörsamlega í Facebookinu að maður var bara búinn að gleyma að það væri til blogg. 

En alla vega þá ætla ég að íhuga þetta. Kannski að maður færi inn einhverja krassandi færslu bráðlega. 

 

 


Meira ruglið!!!

SKO Elskurnar mínar.
Á MBL.is í morgun var skrifað "FL Group ætlar ekki að bjóða í Pret a manager".
OG út alla greinina var alltaf skrifað MANAGER en ekki MANGER.
Þess vegna skrifaði ég fullyrðinguna "Heitir Pret a manger (en) ekki Pret a manager".
Eitt ráð sem ég hef notað í gegnum tíðina til að forðast misskilning er að skoða merkið sem kemur á eftir setningum.
Þá meina ég hvort það komi punktur "." eða jafnvel spurningarmerki "?". Ef spurningarmerki er á eftir setningu þá er sú setning alveg örugglega spurning. Í minni
Nei ég segi nú bara svona fyrst við erum að "besservisserast" í buxurnar.

Hvað í anskotanum haldið þið að ég sé?
Komandi svo með einhverja "bévítans" frönsku kennslu sem ég kæri mig ekkert um.
Reynið bara að vakna fyrr en á hádegi svo að þið sjáið mistök MBL.is áður en þeir leiðrétta þau. :)
Kjánar.


Pret a manager...

Heitir Pret a manger ekki manager.
oh,, my GOD!!! hvað ég er hneyskslaður.

Annars er það að frétta.. að Buff-skrímslið er að gera nýtt lag sem ætti að koma í spilun fljótlega eftir helgina.
Ég er sjálfur "á milli vinna" en er á leið í nýtt, metnaðarfullt og spennandi verkefni .
Eru ekki allir annars bara helvede hressir???

alrighty ..


mbl.is FL Group ætlar ekki að bjóða í Pret a Manger
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paul Gigg í kveld

Jæja, hér er maður kófsveittur að undirbúa giggin í kveld. Paul McCartney Extravagansa. Er niðri í Austurbæ þar sem nú er verið að sándtékka, mega monitorsánd og allt að gerast.
Maður er nú bara með smá fiðrildi- og jafnvel nokkrar mölflugur að auki- í maganum. Djöfull skulum við taka þetta. :)
Jæja best að halda áfram að vinna. Þarf svo að drífa mig að ná í Hammond fyrir kvöldið. Það verður sjálf Drottningin.

kv.
Stefán


Paul McCartney Tribute í Austurbæ 13. September

Því við ætlum... ...að vera svo ósköp þæg og góð... ... og mæta á þess tónleika Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Helgin næsta

Næstu helgi mun Buffið spila á Players, fös. Neistaflugi laug. og aftur á Players sun. Mætið!!! Hér er frábært video, með frábæru lagi í frábærum flutningi: Þessi kann sko á Mandólín, Chris Thile gjörið svo vel. Þarna er hann að spila Life Café sem ég heimsótti nokkuð oft hér í denn. Svo einn gamall og æðislegur "sketch". takk fyrir

Grasekill

Jæja, þá er konan bara stungin af til London þar sem hún er að leika blessunin. Man ekki í hvaða leikhúsi, né hvað er verið að uppfæra en allt mjög spennandi. Þannig að nú er maður bara svokallaður grasekill. En ég hef allavega prinsessu-táslustelpu-skrímslið hjá mér sem sefur vært í næsta herbergi þessa stundina, þessi elska. Fórum tvö saman í húsdýragarðinn í dag í rigningunni, gáfum öndum -og dúfum sem virtust áhugasamari en endurnar- brauð, skoðuðum dýrin, fórum í hringekju og lest. Eftir þetta fengum við okkur ís, keyptum í matinn og svo var haldið heim á leið. Yndislegur dagur verð ég nú að segja. Sit svo bara hérna heima -í myrkrinu og græt... djók- og "surfa" á YOUTUBE eins og svo oft áður. Ég er nefnilega orðin algjör YOUTUBE fíkill og alveg hættur að horfa á sjónvarp, enda er það oftast hundleiðinlegt. YOUTUBE er snilld. Næstu helgi ætlum við CVGG-menn að spila á Firði er kenndu er við Fáskrúð, á Dögum er kenndir eru við franskar. Allt gott að frétta.... Lúkas fundinn og allir sáttir held ég bara... er það ekki??? Sumarjafndægur liðnar og nú fer daginn að stytta og myrkrið skellur á von bráðar og frjókorninn hætta að gera manni lífið leitt. Þá þarf maður að fara á ákveða hvaða ljósker í íbúðinni maður vill hafa kveikt þegar maður fer að sofa svo maður sjái rassgat þegar maður leggst til hvílu. Ég held að að séu bara góðir tímar framundan, nýjar vonir, draumar, væntingar og þrár. "By the way"... veit einhver um vinnu sem er laus???. Því "það er nú einu sinni þannig að það er auðveldara að eyða peningum en afla þeirra". Úr hvaða mynd??? Já, þetta er getraun!!! Nei, nei, það er nú ekki bara út af því að ég eyði of miklu heldur hefur verið ákveðið að fara úr núverandi dagvinnu. Þannig að ef þið vitið um eitthvað gebba-spennó þá látið þið mig vita í síma: "Lexington Avenue Local-Lewinsky málið-Lewinsky málið-Lexington Avenue Local-Lexington Avenue Local". Þið vitið hvað ég meina... ef ekki þá er það bara Vicky Pollard-pedia. Hey hvernig væri að stofna vefsíðuna vickypedia sem væri svona algjör "white-trash"-fróðleikur... sem væri samt oftast rangt farið með og... þið vitið.... ???... Svo er það Verslunarmanna-helreiðin, þá erum við skal ég ykkur segja að spila á Players á föstudagskvöldið, Neskaupsstað á laugardagskvöld og svo aftur á Players á sunnudagskvöldið. Rosa stuð og fjör hjá strákunum. Vonandi sé þig, þá meina ég þig Brynhildur á Players. Ástæðan fyrir því að ég nefni Brynhildi er sú að hún virðist vera eina sem les bloggið mitt fyrir utan Nesa Rokk, og ég veit alveg að hann VERÐUR á Players og reyndar Neskaupstað líka. En nóg af bulli .. love you guys... ég ætla að leggjast alsber upp í sófa og horfa á síðustu 5 "Út og suður" þætti og reykja vindil og borða sardínur... og jafnvel að maður súpi aðeins á volgu sojasoði með. BÆ!!!

PABLO

Verð að henda inn hérna einu svolítið skemmtilegu... Skrifa meira á morgun.. LOFA!!! Commentið endilega...

Sumar og sól

Það er aldeilis hvað þetta sumar ætlar að verða fínt... algjör gebbari. Sólin skín í heiði og allir í mega fíling.
Fór í sumarbústað ásamt Adda bróður og fjölskyldu. Fórum fyrir austan fjall nálægt Úthlíð í FÍH sumarbústað og bara Mallorca veður og gaman. Versta var að frjókornaofnæmið var gjörsamlega að fara með mig og náði varla að sofa fyrir nefrennsli og augnakláða og HITA!!! Annars er ég að leita mér að vinnu ef einhver veit um lausa stöðu á fjármálamarkaðinum.
Spilaði með "Buffinu" á Akranesi síðustu helgi þar sem írskir dagar voru í gangi. Bubbi og Stríð og friður hituðu upp fyrir okkur. Matti Matt söng með okkur eins og auglýst var en Hannes sem var erlendis og Einar sem þurfti að sinna veikindum heima voru vant við látnir. Í stað Nesa var Eysteinn Papi AKA. Steini Tromma fenginn en þar sem hann var lagður inn á spítala með splundraðan botnlanga var hringt á siðustu stundu í Egil Rafns sem kom með okkur, Í stað Einars kom Nafni minn Már Magnússon og stóðu þeir sig báðir eins og hetjur, HETJUR sagði ég.
Jamm jamm. Það sem er framundan er nýtt lag með Buff, spila og spila með Buff og svo ætlar Buff að fara í gang með ansi metnaðarfullt og spennandi verkefni sem ég segi meira frá síðar. Annars er lítið annað að gerast nema bara að knúsa prinessurnar mínar tvær.
ok bæ
Lag dagsins er: Walking on sunshine með Katrina and the waves,,, NEI djók...
Það er: Heaven is a place on earth með Belindu Carlisle, það er vont..

Heima!!!

Jæja.. þá er maður kominn frá Norge og bara einn, því að konan og afkvæmið eru ennþá úti verða í tæpa viku í viðbót. Þetta er fjórði dagurinn minn þar sem ég er án þeirra og það er ALVEG GLATAÐ, sakna þeirra svo svakalega mikið að ég veit ekki hvað ég á að gera við mig eiginlega.. farinn að éta bara eins ég veit ekki hvað, "comfort food"??? En það var yndislegt þarna úti, gert vel við okkur og við vorum talsvert frá erli og stressi stórborgarinnar sem hafði mikið að segja. Vorum meira og minna hálfber bara úti á verönd og voð næs. Prinsessan uppgötvaði litla trampólinið og hoppaði svona ca. 849038364589 sinnum meðan ég var þarna úti og hlóg mikið af gleði. :) Jæja.. áður en ég fer að verða of meir þá ætla ég að hætta þessu.. Myndbönd eru hér.. Imogen Heap hjá Letterman, mjög töff... Imogen Heap - Hide And Seek, algjört snilld... Og svo eitt svakalega vont í lokin:

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband